29. nóvember 2010
Engin(n) fer í jólaköttinn í Adams
Við vorum að taka upp ný náttföt, nærföt, sokkabuxur, samfellur og náttgalla.
Einnig vorum við að fá ótrúlega flott föt bæði í ungbarnadeild og eldri deildir. Litirnir eru skærir og flottir og má sjá nýjar myndir á facebook síðunni okkar, www.facebook.com/AdamsIceland
Við vorum líka að taka upp okkar sívinsælu joggingbuxur og fengum þær í svörtu og nýjum dökkbláum lit, sem er örlítið skærari en áður. Þær eru á sama verði og áður, 1.799 kr. Náttfötin eru á 2.999 kr. Einnig erum við með flónelsnáttföt á 3.499 kr.
Frá og með 9.desember verður opið til klukkan 22 í Smáralind. Á heimasíðu Smáralindar má finna upplýsingar um dagskrá í húsinu í desember en hér verður meðal annars jólaleikrit, jólatré, jólasveinar, jólaland og heilmargt fleira skemmtilegt.